Hvað er SMP?
Hvað er Scalp Micro Pigmentation?
Scalp Micro Pigmentation, eða SMP, er sérhæfð meðferð þar sem þúsundir örsmárra tattoopunkta eru settir í húðlagið til að endurskapa útlit nýrrakaðs hársvörðar.
Meðferðin skapar raunverulegt útlit hárróta og býr til nýja hárlínu eins og þú sért í rauninni bara að búin að raka hárið og eftir situr skugginn frá hárrótunum.
SMP aðferðin er núna framkvæmd á stofum í yfir 50 löndum þar sem að bæði knour og menn á öllum aldri nýta sér þessa leið til þess að:
• Endurskapa hárlínu
• Fela þynningu og hármissi
• Draga úr sýnileika örvefs
• Fá yngra og meira skilgreint útlit
Flestir ljúka meðferðinni á 3 skiptum yfir um 6 vikna tímabil og bata tíminn er enginn þú getur mætt í vinnu strax daginn eftir.
En hvernig er SMP framkvæmt ?
- Sendu myndir af þér og fáðu verðtilboð
- Komdu á Zoom og fáðu nánari upplýsingar
- Pantaðu tíma þar sem að meðferðin hefst á teikningu og litablöndum ásamt fyrstu umferð sem getur tekið frá 5 - 9 klst eftir umfangi verksins
- þetta eru 3-4 sesssions allt í allt og það eru ca. 14 dagar á milli skipta. Þú þarft ekki frí frá vinnu og heildar meðferðin eru 6 vikur.
En fyrst viltu ekki prufa hvernig þú lítur út með SMP?
Hér er slóðin...
En þegar þú opnar slóðina
- Sláðu inn emailið þitt
- Settu inn SMPIceland
- Settu inn SMPIceland
þá setur þú inn emailið þitt, að því loknu þá eru tveir gluggar í viðbót þar sem þú ert beðin um að fylla út, fyrst instagram account og síðan fyrirtæki, þú setur SMPIceland í báða dálkana og þá ertu komin inn og getur skoðað hvernig þú lítur út með SMP í 6 mismunandi útgáfum.
Fyrir og eftir
Eins og þú sérð þá eru margar gerðir af SMP
- á mynd nr. 1, þá er ég að nota ljósa liti og brotna línu eða eins náttúrulegt SMP eins og það gerist
- Á mynd nr. 2, þá er ég að nota brúnan tón og meira density eða þéttleika eftir óskum viðskiptavinarins.
- Á mynd nr. 3, þá er ég að fara svo kallaða millileið ekki það ljósasta og ekki density og hárlínan er feathered.
- Á mynd nr. 4, þá er ég búin að gera mjög dense buss cut SMP þannig að það eru allskonar möguleikar einnig getur þú skoðað meira inn á instagram og TikTok undir SMPIceland.
SMP Up Close
Umsagnir viðskiptavina
Um SMP Meistarann
With our handy + button, you can easily add anything to your page - checklists, charts, graphics, and more!
Um Hönnu Kristínu Didriksen
Ég heiti Hanna Kristín Didriksen og hef starfað í snyrtigeiranum í yfir 30 ár.
Undanfarin ár hef ég sérhæft mig í Scalp Micropigmentation (SMP) og lagt áherslu á að skapa raunverulegar hárlínur með nákvæmni, jafnvægi og faglegri nálgun.
Markmið mitt er einfalt: að hjálpa fólki að endurheimta útlitið og sjálfstraustið sitt með SMP sem líkir eftir raunverulegum hárrótum.
Hver meðferð er sérsniðin að andlitsformi, aldri, húðgerð og markmiðum viðskiptavinarins til að tryggja sem bestan árangur.
Hanna Kristín Didriksen
Stofnandi SMP Iceland
Meistari í snyrtifræði frá árinu 1990.
Sérhæfð í PMU (Permanent Makeup / snyrtitattoo) frá árinu 1998.
Sérhæfð í Scalp Micropigmentation (SMP) frá árinu 2022.