About us

 

Á bak við SMP Iceland er Hanna Kristín Didriksen, snyrtifræðimeistari frá 1993.

Ég hef starfað við PMU (permanent make up tattoo) síðan 1997. Eftir að hafa flúrað brúnir, eyeliner og varir fyrir konur í yfir 20 ár var kominn tími á breytingar. Í Covid færði ég mig yfir í nýtt svið, skráði mig á námskeið hjá Scalp Micro USA og þar hófst ferðalagið.


Ég nota litina sem Scalp Micro hefur þróað, einnig þekkta sem Follicule. Þetta eru sérhannaðir litir fyrir húðflúrpunkta í höfuðleðri sem líta eðlilega út og endast lengi.


Undanfarin fjögur ár hef ég sérhæft mig í SMP. Þar á meðal er SMP yfir allt höfuðið, hluta-SMP þar sem punktarnir fylla inn svæði þar sem hárið hefur verið að þynnast, SMP til að hylja ör eftir hárígræðslu og SMP til að mynda áhrif þykkara hárs þegar hárið er orðið mjög þunnt og hársvörðurinn farinn að skína í gegn.


Ég er vandvirk, nákvæm og set gæði í forgang. Markmið mitt er að hver viðskiptavinur fari héðan öruggur, ánægður og með niðurstöðu sem stenst væntingar.


Ég fylgi þér í gegnum allt ferlið, frá fyrsta sambandi og þar til meðferðinni er lokið, af alúð og fagmennsku.

Markmiðið er að þú upplifir öryggi, traust og ánægju.


Ef þú ert að íhuga SMP geturðu bókað 15 mínútna ráðgjöf með því að ýta á Bóka fund, þar sem við förum yfir helstu atriði.