Hármissir hefur áhrif á bæði karla og konur. Scalp Micro Pigmentation, eða SMP, er sérhæfð meðferð sem er notuð við skalla, víkjandi hárlínu, dreifðan hármissi og ör í hársverði.
Hvað er SMP?
Scalp Micro Pigmentation, eða SMP, er sérhæfð meðferð þar sem örsmáir punktar eru tattóveraðir ofan í húðlagið til að líkja eftir náttúrulegum hárrótum.
Markmiðið er að skapa nýja hárlínu og útlit stuttra hárróta sem fellur að andlitsfalli, húðlit og þeim stíl sem hver einstaklingur velur.
Fyrir hverja hentar SMP?
SMP hentar meðal annars:
- Körlum með skalla eða víkjandi hárlínu.
- Einstaklingum með dreifðan hármissi.
- Fólki sem hefur farið í hárígræðslu.
- Einstaklingum með ör í hársverði.
- Konum og körlum sem vilja bæta ásýnd hársvarðarins.
Hvernig fer meðferðin fram?
Meðferðin er framkvæmd í 3–4 skiptum yfir 6 vikna tímabil. Tvær vikur þurfa að líða á milli meðferða til að húðin nái að gróa og niðurstaðan þróist eðlilega á milli skipta. Hvert skipti getur verið frá 4 klst upp 7 klst fer eftir umfangi verkefnisins.
Hárlínan, litaval og útkoman eru sérsniðin fyrir hvern einstakling.
Er SMP hárígræðsla?
Nei.
SMP er ekki hárígræðsla og skapar ekki ný hár. Meðferðin byggir á því að líkja eftir náttúrulegum hárrótum með mörg þúsund örsmáum punktum sem eru tattóveraðir í húðina.
Hversu lengi endist SMP?
SMP er langtímalausn. Með tímanum lýsist tattoo liturinn eins og gefur að skilja og margir velja að fríska upp á niðurstöðuna með viðhaldsmeðferð eftir nokkur ár. Það er mjög einstaklingsbundið hversu langur tími þarf að líða
Kostir SMP
- Engin skurðaðgerð.
- Stuttur eða enginn batatími.
- Meðferðin er framkvæmd í 3–4 skiptum.
- Hentar bæði körlum og konum.
- Ný hárlína búin til með mörg þúsund tattóveruðum punktum.
- Hárlínan er sérhönnuð fyrir hvern einstakling.
- SMP punktarnir fela ör eftir hárígræðslu.
- SMP skapar útlit nýrakaðs hársvarðar.
- Langtímalausn við hármissi.
SMP Iceland
Hjá SMP Iceland leggjum við áherslu á mjúkar hárlínur, rétta litablöndun og niðurstöður sem líta út eins og stuttar náttúrulegar hárrætur.